Pabbi á morgun?

mars 25th, 2008 by Steinar

Ég held að ég sé tjillaðasti gaur í heimi. Við eigum víst að mæta niður á Lansa á morgun og þá á bara að panta eitt stykki fæðingu. Magnað hvað hægt er að gera í dag (þó þetta hafi verið gert í langan tíma). Þannig það stefnir allt í að ég sleppi við panic um nótt, keng ruglaður að taka saman tösku og gleyma helmingnum heima í stund panic-sins. Heldur verður allt tekið saman í rólegheitunum í tösku, klæði mig í sokka og rölti út í bíl. Ekkert :”STEINAR ÉG VAR AÐ MISSA VATNIД eða “DRULLAÐU ÞÉR Á LAPPIR HELVÍTIS HROTUDÝRIÐ ÞITT OG FRÆSTU MÉR NIÐUR Á SPÍTALA”. Nei ég fæ víst ekki að kynnast þessari annars skemmtilegu lífsreynslu. Í staðinn fæ ég aðeins að upplifa þetta niður á deild og ég fæ að vita allt með smá fyrirvara þannig ég geti undirbúið mig andlega fyrir næstu skipun. Já skipun… Ég verð þarna í ríki kvenna og sem alger hjálparhella, stoð og stytta, tilbúinn að sigra heiminn og takast á við allt sem koma skal - eða ég held það allavega? Ég verð boxpúðinn á sama tíma og vera gaurinn sem fer og kaupir Opal í sjálfsalanum - spes. En vona í senn að ég standi mig vel.

Ég get samt ekki sagt annað en að ég sé frekar stoltur af henni Unni. Hún er hvað mest rólegust yfir þessu öllu og virðist hafa eytt síðustu 41 viku og 8 dögum í andlegan undirbúning fyrir þennan dag. WHAT! hvernig átti ég að fatta það? Ég gerði það allavega ekki. Ég verð eflaust týpan sem grenjar og hlær á sama tíma hringjandi í alla. Mér hefur hlakkað svolítið til síðan ég var á hinum endanum og fékk símtal frá Kidda félaga í frekar miklu “uppnámi” í þessari stöðu þegar Ísak fæddist. Ég held maður gerir sér ekki grein fyrir þessu fyrr en maður upplifir þetta sjálfur.

En ég vildi bara henda inn smá færslu - ég geri víst lítið næstu dagana annað en að kynnast nýja fjölskyldumeðliminum og kaupa Pampers og hafa það nice.

Posted in Blogg | 6 Comments »

Hehe

mars 12th, 2008 by Steinar

lol

Posted in Blogg | 2 Comments »

Cisse drekkur ekki mjólk…

mars 7th, 2008 by Steinar

Hversu óheppinn er hægt að vera? sami maður.. sitthvor löppin. Brotna eins og tannstönglar. Nokkuð ljóst að Cisse drekkur ekki mjólk..

fyrra atvik:

Seinna atvik:

Bæði brotin eru líka fáránlega svipuð

Posted in Blogg | 1 Comment »

pulsa og kók

mars 3rd, 2008 by Steinar

Fór á laugardaginn í lúgusjoppu og ætlaði ég mér að næla mér í “eina með öllu”. Þegar ég renndi í hlað blasti við stórt skilti með myndum og verðum á hinum ýmsu tilboðum. Þar var t.a.m. mynd af pulsu og kók EÐA pepsi (það stóð á skiltinu kók EÐA pepsi). Þetta leyst mér vel á. Lúgan opnaðist og við mér blasti skælbrosandi maður sem sagði “góðan dagur”. Ég sagðist ætla að fá pulsutilboðið hjá honum og kók light. Einfalt ekki satt? En nei… Hann sagði strax “bara pepsi með tilboð”. Þá sagði ég honum með bros á vör að það væri örlítill misskilningur því það stæði skýrum stöfum á skiltinu að ég hefði val um kók eða pepsi og ég ætlaði því að fá kók. Hann sagði “bara pepsi með tilboð”. Ég hugsaði með mér “hann segir þó ekki MEIRA?” Ég reyndir í góðar 5 mín að kaupa mér eina skitna pulsu og kók með henni og sagði honum að lesa skiltið (hann fór hálfur út úr lúgunni og sá þetta en neitaði mér samt um kók). Ég ákvað því að sleppa því bara og segja bless þegar ég sá að ég fengi bara pepsi með pullunni….

Posted in Blogg | 6 Comments »

Ísland í dag

febrúar 25th, 2008 by Steinar

Ja hérna hvað gamla góða Ísland er að vera alþjóðlegt land. Vaknaði á sunnudaginn og fór eins og alvöru unnusti á konudaginn á stúfana að ná í eitthvað fyrir konuna. Ég byrjaði á því að fara í bakaríið. Þar þurfti ég að panta snúð og rúnstykki á ensku. Vá, ekki hefði ég ímyndað mér að ég þyrfti nokkurntíman að segja “einn snúð með súkkulaði” á ensku - sá dagur rann hinsvegar upp. Því næst fór ég í Hagkaup þar sem pólska gellan sem á blómabúðina í Spönginni er búinn að leggja álög á blómin sín og þau drepast alltaf eftir 24 tíma “samt þetta vera rosa sterk blóm!”. Ég labbaði gegnum Hagkaup og heyrði 3 mismundandi tungumál á leiðinni á kassann. Á kassanum afgreiddi mig kona sem var augljóslega pólsk. Ekki búin að vera lengi á landinu reiknaði ég með því henni fannst allt rosa fyndið - alveg eins og Kínverjunum á dönsku námskeiðinu í Álaborg um árið. Fyndið hvað fólk kemur sér í gegnum erfiðleika með djóki. En ég heyrði lítið í pólsku vinkonunni því það var Rússi að, tja, ekki tala heldur rífast/öskra í tíkalla símanum rétt hjá. Nokkuð ljóst að aðilinn á hinum endanum var ekki vinsæll. Mögulega verið einhver verktaki á Íslandi sem skuldar honum laun.

Engu að síður toppar þetta ekki það sem ég lenti í á Jóa Fel í dag. Ég vil eiginlega þakka fyrir að ég var með Danna vinnufélaga þarna inni frekar en t.d. Gunna eða Sigga Dan - því ef ég hefði veri með þeim hefði ég einfaldlega ekki getað hamið mig. Þannig er mál með vexti að þarna vinnur glöð kona af asískum uppruna sem talar vægast sagt mjög slæma íslensku. Þegar hún var svo að afgreiða okkur og taka niður það sem við vildum sagði hún alltaf orð sem mér fannst alveg ógeðslega fyndið því það var eitthvað svo röng íslenska. Þegar þú segir “já ég ætla að fá eitt svona” þá er vaninn að afgreiðsludaman segir “já fleira?” en í stað þess að segja það sagði hún alltaf “já meira!” eða einfaldlega bara “MEIRA?”. Til að bæta gráu ofan á svart heyrði þessi annars ágæta afgreiðsludama frekar illa og var haldin einhverskonar athyglisbrest. Ég er alveg á því að ef ég hefði verið með t.d. Sigga þarna og litið á hann í 1 sec. hefði ég eflaust byrjað að flissa og sennilega dáið á endanum úr hlátri og aldrei komið aftur þangað. Þetta þýðir samt það að ég get ekki farið með þeim þangað….

Langaði að deila þessu með ykkur

Posted in Blogg | 2 Comments »

Könnun - verkefni

febrúar 3rd, 2008 by Steinar

Við erum að gera verkefni í skólanum og þurfum endilega á þínum stuðning að halda!

Endilega taktu þátt í þessari örstuttu könnun : SMELLA HÉR

Posted in Blogg | No Comments »

Unnur tekin við blogginu!

janúar 24th, 2008 by Steinar

Já sá dagur kom.. Unnur er orðin actívari bloggari en ég

Þið getið fylgst með okkur líka á Barnanetssíðunni sem Unnur bjó til sem er http://barnanet.is/stelpa

Posted in Blogg | 1 Comment »

Farðu heim gamli maður

nóvember 11th, 2007 by Steinar

Ég var að muna eftir frekar fáránlegu atviki í lífi mínu sem átti sér stað um daginn. Þannig var mál með vexti að það fór önnur framljósaperan í bílnum mínum sem ég hélt að væri ekkert tiltökumál. Nema að ég hringi í Bernhard og spyr hvað svona pera kostar. Ástæðan fyrri því að ég hringi í þá er sú að þetta er Xenon system í bílnum og slíkar perur fást ekki á bensínstöð. Allavega kemur smá hik á afgreiðslumanninn hjá Bernhard þegar hann augljóslega sá verðið í tölvunni hjá sér og sagði svo lágt: “19.906 krónur”. Ég var að keyra á Sæbrautinni, missti símann í gólfið sveigði á rangan vegarhelming og er ekki frá því að hafa misst örlítið þvag í gallabuxurnar. Ég tók símann aftur upp og sagði “Nei mig vantar sko bara peruna… Ekki hægri spindiltúrbínu”. En þetta var staðreynd.. Bernhard er náttúrulega bara grín sjoppa. Þannig ég fór að leita á netinu og svona og tafði það semsagt að skipta um peru í einhverja daga. Nema hvað að ég er að keyra eitt kvöldið og er að bíða eftir að komast inn á götu og kemur þá bíll keyrandi mjööööög hægt. Ég renni mér inn á götuna á eftir honum. Nema hvað að bíllinn fyrir framan mig stoppar þannig að ég kemst ekkert og enginn annar. Þá opnast hurðin og eftir 19 mínutur stendur upp 146 ára gamall maður sem stönglast til mín og bankar á rúðuna. Ég skrúfa niður og þá segir hann “Hvað ertu að gera!?” og ég bara:”hmm ha hvað áttu við?” Þá hreytir hann út úr sér:”Ekki ætlaru að fara keyra svona drengur??” Þá var hann sumsé að stoppa alla umferð, fara út úr bílnum sínum og ónáða mig vegna þess að ég var eineygður og að hann bara væri hálfblindur út af því. Nú þar sem þessi maður var líklegast að fara láta lífið næsta þriðjudag nennti ég nú ekki að segja neitt og skrúfaði bara upp rúðuna og beið í 23 mínutur eftir að hann labbaði að bílnum sínum, settist inn og keyrði af stað.

Shit hvað sumir eiga bágt! Hvað er svona fólk líka bara að gera í umferðinni eða bara innan um eðlilegt fólk? Ef maðurinn getur ekki stjórnað sínu ökutæki því það er eineygður bíll á sama vegi og hann, ætti hann ekki að hafa leyfi til að stýra reiðhjóli!

Jæja hef þetta ekki lengra í bili…. Barcelona á mánudaginn H&M er að fara græða…. það er nokkuð ljóst.

ps. Það er stelpa á leiðinni :)

Posted in Blogg | 8 Comments »

Bara fyrir Bigga

október 24th, 2007 by Steinar

Ég var í sakleysi mínu að skoða 5aur.net áðan og þar stóð efst að ég væri ömurlegur bloggari. Sæææææll eigum við að ræða það eitthvað? ég ákvað því … bara því Biggi skrifaði að það gerðist aldrei neitt hérna… að blogga!

Þá fer maður að spá… hmmm hvað á ég að blogga um?

Líf okkar Unnar er frekar glatað þessa dagana. Við áttuðum okkur kannski ekki alveg á því að með því að vinna fulla vinnu og skrá okkur einnig í fullt háskólanám, eiga hund og fara verða foreldrar er kannski smá pakki…. Þetta þýðir í fáum orðum: ekkert líf. Tíminn æðir einhvernvegin áfram og áður en maður veit af er Dísa kominn á lóðarí aftur. Talandi um lóðarí og þennan blessaða hund minn. Þegar þetta 30 kg heimska kjötstykki fer á þetta miður svo skemmtilega tímabil er húsið varla vistvænt. Flestir hundar skammast sín og sleikja hvert snitti upp til agna þannig að eigandinn sér þetta varla. En hundurinn minn… NEEEEI. Húsið er eins og sláturhús á hænsnabúi í Jerúsalem. Þegar ég ríf í hundinn og segi henni að sleikja upp eftir sig þá svona gerir hún það gelgjulega… svona rétt sleikir og horfir á mig með hneykslunarsvip! Versta við þetta allt þá er þetta svona eins og það hafi verið að ganga í skrokk á einhverjum hérna inni. Vinkona Unnar kom hér í dyragættina um daginn í fyrsta skiptið og leit á gólfið.. og svo á mig… þarf engan Einstein til að fatta hvað hún var að hugsa.

Ég hef þó ekki gefið upp alla von á hundspottinu því ég pantaði tíma hjá hundaþjálfara um daginn. Gallerí Voff varð fyrir valinu og áttum við þar private session með einhverri afmyndaðari sveitakonu. Hún skrifaði heil ósköp og tók hundinn út og sagði loks “já.. hún Dísa er 5 hundar”. Því næst sýndi hún okkur að eina leiðin til að aga hana til væri að lemja hana. Hún sparkaði eitt skipti í hana og það munaði minnstu að ég drop-kickaði hana til baka og tæki hana svo júdótaki… en sleppti því. Í stuttu máli fórum við ekki aftur til að borga 5000 kall til að kenna okkur að lemja hundinn okkar. Ég hinsvegar fór eftir þetta að taka mjög hart á henni og hún er ögn skárri… en alveg jafn heimsk.

Jæja læt þetta duga í bili… þetta var bara fyrir þig Biggi ;)

Posted in Blogg | 9 Comments »

Sniðugt

september 7th, 2007 by Steinar

Ótrúlega mörg vídjó þarna sem maður hefur actually séð… brilliant samsetning

Posted in Blogg | 2 Comments »

« Previous Entries